A positive public consultation outcome for the Hugarró Nature Retreat project in Iceland

Wonderful news!  (íslenska hér að neðan)

We are deeply aware of what a privilege it is to be given the opportunity to develop this unique, signature project in the breathtaking landscape of Hvalfjörður. A privilege of this scale carries an equally immense responsibility to the land, the local community, and the future of sustainable travel in Iceland—a responsibility we take very seriously.

The public consultation period for the detailed plan for Hugarró at Litla-Botnsland 1 has concluded, and the outcome gives us considerable confidence in the path ahead.

The key national authorities have not raised fundamental objections to the proposal. Instead, they have provided recommendations and requirements that we will address as the project progresses. That is what a constructive planning process should deliver: scrutiny, expert guidance and a clear framework for responsible implementation. The detailed plan has been developed around nature experiences, ecosystem restoration and minimizing disturbance to the existing birch woodland.

Some stakeholders have raised objections during this period and we fully respect their right to participate in the public consultation. Navigating differing viewpoints is a natural and valuable part of any robust planning process. We remain entirely committed to addressing all feedback constructively through the proper administrative channels with Skipulagsstofnun, the National Planning Agency, and as always, we remain open to positive, direct dialogue.

We are particularly grateful for the solid work of our consultants at EFLA, the continued support of the Municipality of Hvalfjarðarsveit, the positive response we have received from the local community during last year’s public meeting at the municipality, and the many kind and encouraging messages received from other Icelandic stakeholders.

Our mission remains unchanged: to demonstrate that nature-based tourism, when developed and operated responsibly, can create a genuine win-win-win for visitors, local communities and nature.

Responsible nature-based tourism can:

  • Create employment and local income through accommodation, guiding, food production and other services.
  • Help generate funding for conservation and protected-area management through entrance fees, permits and concession arrangements where applicable.
  • Increase awareness of the value of nature while supporting mental and physical well-being.

These benefits are also recognized by organizations including UN Tourism, the World Bank, IUCN and the World Health Organization.

At Litla-Botnsland in Hvalfjörður, our ambition is not simply to construct a resort. It is to create a first-class hospitality destination that protects and restores nature, contributes to the local economy and helps guests develop a deeper connection with Iceland’s extraordinary landscape.

This day is an important milestone, although not the end of the process. We look forward to continuing our cooperation with the municipality, government agencies, local stakeholders and our consultants as we turn these principles into practice. 

 


Litla-Botnsland, 14. júlí 2024

Jákvæð niðurstaða opinbers samráðs um náttúrudvalarstaðinn Hugarró á Íslandi

Við gerum okkur fyllilega grein fyrir því hvílík forréttindi felast í því að fá tækifæri til að þróa þetta einstaka og metnaðarfulla verkefni í stórbrotnu landslagi Hvalfjarðar. Slíkum forréttindum fylgir jafnframt mikil ábyrgð gagnvart landsvæðinu, nærsamfélaginu og framtíð sjálfbærrar ferðaþjónustu á Íslandi — ábyrgð sem við tökum mjög alvarlega.

Opinberu samráðsferlinu vegna deiliskipulags Hugarró að Litla-Botnslandi 1 er lokið og niðurstaðan gefur okkur ríka ástæðu til bjartsýni um framhaldið.

Helstu ríkisstofnanir hafa ekki gert grundvallarathugasemdir við tillöguna. Þess í stað hafa þær sett fram ábendingar og kröfur sem við munum vinna úr eftir því sem verkefninu vindur fram. Þannig á uppbyggilegt skipulagsferli einmitt að virka: með vandaðri yfirferð, faglegri leiðsögn og skýrum ramma um ábyrga framkvæmd. Deiliskipulagið hefur verið mótað með áherslu á náttúruupplifun, endurheimt vistkerfa og að halda raski á birkiskóginum sem fyrir er í lágmarki.

Nokkrir hagaðilar hafa sett fram andmæli á þessu tímabili og við virðum að fullu rétt þeirra til þátttöku í opinberu samráði. Mismunandi sjónarmið eru eðlilegur og mikilvægur hluti hvers vandaðs skipulagsferlis. Við erum áfram staðráðin í að bregðast við öllum ábendingum og athugasemdum með uppbyggilegum hætti eftir viðeigandi stjórnsýsluleiðum í samráði við Skipulagsstofnun. Jafnframt erum við, sem fyrr, opin fyrir jákvæðu og beinu samtali.

Við erum sérstaklega þakklát fyrir vandaða vinnu ráðgjafa okkar hjá EFLU, áframhaldandi stuðning Hvalfjarðarsveitar, jákvæð viðbrögð sem við fengum frá nærsamfélaginu á opnum fundi sveitarfélagsins á síðasta ári og þau fjölmörgu hlýju og hvetjandi skilaboð sem okkur hafa borist frá öðrum íslenskum hagaðilum.

Markmið okkar er óbreytt: að sýna fram á að náttúrutengd ferðaþjónusta, þegar hún er þróuð og rekin af ábyrgð, geti skapað raunverulegan þríþættan ávinning fyrir gesti, nærsamfélög og náttúruna.

Ábyrg náttúrutengd ferðaþjónusta getur:

  • Skapað störf og tekjur í heimabyggð með gistingu, leiðsögn, matvælaframleiðslu og annarri þjónustu.

  • Stuðlað að fjármögnun náttúruverndar og umsjónar með friðlýstum svæðum með aðgangsgjöldum, leyfisgjöldum og sérleyfissamningum, þar sem það á við.

  • Aukið vitund um gildi náttúrunnar og um leið stuðlað að andlegri og líkamlegri vellíðan.

Þessi ávinningur er einnig viðurkenndur af alþjóðastofnunum á borð við Ferðamálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UN Tourism), Alþjóðabankann, Alþjóðanáttúruverndarsambandið (IUCN) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO).

Að Litla-Botnslandi í Hvalfirði er metnaður okkar ekki einfaldlega að reisa dvalarstað. Við ætlum að skapa fyrsta flokks áfangastað í gisti- og upplifunarferðaþjónustu sem verndar og endurheimtir náttúru, leggur sitt af mörkum til efnahagslífsins á svæðinu og hjálpar gestum að mynda dýpri tengsl við einstakt landslag Íslands.

Þessi dagur markar mikilvæg tímamót, þótt ferlinu sé ekki lokið. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við sveitarfélagið, opinberar stofnanir, hagaðila á svæðinu og ráðgjafa okkar við að hrinda þessum meginreglum í framkvæmd.

Þorvaldur Westmaas

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *